Það verður að viðurkennast að undirritaðan rak í svokallaðan rogastans þegar hann sá þessa frétt á Rúv.
Samkvæmt skrifstofustjóra upplýsingaskrifstofu utanríkisráðuneytisins vinnur stjórnarráðið eins og smurð vél að kynningarmálum Íslendinga í útlöndum. “Það sé hins vegar með kynningarmálin eins og heimilisstörfin, þau sjáist ekki fyrr en þau séu vanrækt.” Segir svo þessi ágæti skrifstofustjóri. Ég þurfti að lesa þetta aftur yfir til að vera viss um að ég áttaði mig á inntakinu. Og þó er ég engu nær.
Með kynningarmálum er væntanlega verið að vísa til almannatengsla eða Public Relations á frumheitinu. ( Geri því skóna að ekki sé átt við markaðslega boðmiðlun sem hluta af því að staðfæra Ísland í alþjóðlegu umhverfi). Hlutverk almannatengsla er að reyna að stjórna upplýsingaflæði og hafa áhrif á það og inntak þess milli fyrirtækis / vörumerkis / skipulagsheildar og svo hlutaðeigandi (e. stakeholders). Skv. Almannatengslafélagi Íslands felast almannatengsl til dæmis í “upplýsingagjöf og margháttuðum samskiptum við almenning, fjölmiðla, hluthafa, fjárfesta, starfsmenn og aðra hópa sem og ýmis konar ráðgjöf og stefnumótun.”
Ég get því ekki með nokkru móti skilið að það sé ásættanlegt að sá sem haldi utan um kynningarmál Íslands á alþjóðavettvangi telji það kost að kynningarstörfin sjáist ekki. Ef til vill á hún við að sú vinna sem fer fram bak við tjöldin sé flestum ósýnileg. En afraksturinn á sem flestum að vera ljós. Sérstaklega þar sem kynningarmál snúast um tengsl við hluthafa, sem jú eru meðal annars Íslendingar í þessu stóra hagsmunamáli. Það er kannski ekki skrýtið að ímynd landsins sé eins og hún er, þegar litið er á staðfærslu vörumerkisins Íslands sem heimilisþrif. Þetta snýst nefnilega ekki um að þrífa upp skítinn, þetta snýst um að allt líti svo vel út á yfirborðinu að einn og einn skítablettur breyti litlu þar um…
Þessi setning Kristínar Árnadóttur: “Það sé … með kynningarmálin eins og heimilisstörfin, þau sjáist ekki fyrr en þau séu vanrækt.” er sú barnalegasta* sem ég hef heyrt um markaðsmál. Mér hrýs hugur við tilhugsunina um að fólks sem lætur svona lagað útúr sér skuli hafa hlutverk í því mikilvæga verkefni sem enduruppbygging vörumerkisins ÍSLAND er.
Comment by Hörður Harðarson — August 4, 2009 @ 3:22 pm |
Heimilisstörfin sjást einnig þegar allt er fínt og fágað. Þessvegna skil ég ekki þessa samlíkingu hjá Kristínu.
Comment by Guðrún Hlíðar — August 4, 2009 @ 9:03 pm |
Ótrúlega magnað…en á svo sorglegan hátt!
Comment by Guðmundur Arnar — August 4, 2009 @ 10:45 pm |
[...] stebbigunn @ 11:33 am Tags: Annað, hið opinbera, islenska, Markaðsmál Hef áður minnst á fúsk hins opinbera þegar kemur að markaðsmálum. Hér er enn eitt [...]
Pingback by Fúsk – ekki fagmennska « Ramblings — August 26, 2009 @ 11:33 am |